Ég er Snillingur og ekkert annað

mánudagur, mars 15, 2004

Kannast e-r við þennan sexý hönk í feldnum?


Ég er Snillingur og ekkert annað

miðvikudagur, mars 10, 2004

Ég er flutt

Líkt og svo margir aðrir hef ég gefist upp á blogger og ákveðið að flytja mig um set.. Nýja síðan mín er Hér
Ég er Snillingur og ekkert annað

mánudagur, mars 08, 2004

Miss Match

Erla vinkona mín er líkt og allir vita enn piparjúnka, einnig Marta og Sonja .. þó þær séu ekki jafn desperat !! Ég elska vinkonur mínar mjög mikið og vil að þær sé hamingjusamar. Því hef ég ákveðið að leggja mitt að mörkum til að hjálpa þeim að finna draumaprinsinn! Ég hef því leitað að álitlegum karlkostum sem líklegt er að allavega Erlu eigi eftir að líka við og hér kemur smá sýnishorn: Piparsveinn 1 - Piparsveinn 2 - Piparsveinn 3 - Piparsveinn 4


Ég er Snillingur og ekkert annað

laugardagur, mars 06, 2004

Ósanngjarnt?

Er ósanngjarnt að vera illa við manneskju afþví að hún/hann hafi verið leiðinleg við mann í draumi í nótt?
Ég er Snillingur og ekkert annað

fimmtudagur, mars 04, 2004

Linkar

Ég er búin að laga linkana, búin að setja nýju síðuna hennar Ausu í staðin fyrir þá gömlu :)

Setti líka link á sniðuga síðu sem ég fann:Matarland, en þar eru allskonar uppskriftir og tenglar inn á örugglea allar uppskrifasíður landsins!!

Ég og Sonja erum búnar að vera að skoða fullt af áhugaverðum bloggsíðum eftir þjóðþekkta Borgnesinga.. og erum að spá í að linka yfir á þá.. Búa til "Borgnesingadálk" inn á síðurnar okkar því að sjálfsögðu á maður að vera stolltur af uppruna sínum !!


Ég er Snillingur og ekkert annað

miðvikudagur, mars 03, 2004

Nei.. það er ekki auðvelt að vera fullkominn!!!!

Alveg hreint ótrúlegt hvað þessi netpróf geta sagt manni mikið um sjálfan mann og framtíðina..

HASH(0x8b2cbd4)
Idol

The ULTIMATE personality test
brought to you by Quizilla

CWINDOWSDesktopBringiton.jpg
Bring It On!

What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla

Will Turner is the caring young man from pirates of the caribbean. he will adore you till the day that he dies
You are going to Marry orlando Bloom. He will
always treat you right and is very romantic. He
will do anything for you. He is very polite and
has deep brown eyes and is very good looking
(which is another plus!). He can make anything
cheesy look really hot(like sliding down stairs
on a shield shooting arrows or wearing pointy
ears for example). Congrats!!

Which male celebrity are you going to marry? (now 12 (i just added more, and still more to come!)results that have pics!)
brought to you by Quizilla


Ég er Snillingur og ekkert annað

Blogger.com

Ég er búin að vera stanslaust að laga bloggið mitt síðustu daga.. áðan var ég að endurskrifa yfir öll spurningarmerkin sem höfðu myndast... alltaf þegar eitthvað lagast.. þá bilar annað!..

Ætti maður að fara að skifta yfir í blogdrive eða kannski central????


Ég er Snillingur og ekkert annað

Ég er snillingur

Ég er alger snillingur mér tókst að laga þetta dótarí hér á síðunni.. með engri hjálp frá neinum :)

ég lent samt í frekar leiðinlegu húsmóðuróhappi áðan (góðar fréttir fyrir Guðnýu Ebbu og fleiri sem hafa beðið spenntir eftir að ég slasi mig.. eða skemmi eitthvað).. Það er búið að vera svo hræðilegt veður að ÖLL útiföt sonar míns voru orðin drulluskítug.. ég setti þau því í vélina niðrí í þvottahúsi .. ég setti óvart á kerfi sem þvær á 60 gráðum í staðinn fyrir að þvo þau á 30 gráður í viðkvæmu ullarþvottakerfi.. ég fattaði það um leið og ég var búin að borga í vélina og setja hana af stað.. það var ekki hægt að gera neitt til að stoppa vélina.. stúdentagarðaþvottavélardrazl.. ég fór og talaði við Garðprófastinn og hún gat ekkert gert.. og ég beið því í hálftíma og fylgdist með vélinni misþyrma úlpu, snjóbuxum, pollagalla, flýsflíkum og ullarvettlingum og sokkum... að andvirði allavega 15000 kall.... Til allra hamingju þá tókst vélinni ekki að skemma neitt.. þó fötin séu öll aðeins tuskulegri og asnalegri en áður.. Barnið mitt verður þó allavega í hreinum fötum á morgun.. HA!


Ég er Snillingur og ekkert annað

Kommentakerfið komið í lag.....

Jæja mér tókst að laga kommentakerfið... fiktaði bara eikkað afþví ég skildi ekkert leiðbeiningarnar hans Jóa.... og í staðinn þá duttu dagsetningarnar út.. og eitthvað fleira.. Ahh ég er agalega léleg í svona löguðu.. skil ekkert hvað er hvar og afhverju!! Vill einhver hjálpa?? Jói???
Ég er Snillingur og ekkert annað

Ég er Himmi Rapp

Rap
You are Rap! You are in touch with your roots and protective of
your family and friends. You are concerned for
the little guy, and you resent being trampled
upon or ignored. You tend to scare people you
meet for the first time, and this can lead to
enemies that you don't need. You don't like to
back down, so if a fight comes your way you
will meet it head on. This can be both good
and bad; you need to decide which fights are
worth fighting and which will waste your time
and make you look bad. Once you do that you'll
find that it will be much easier to accomplish
your goals.

What Kind of Music are You?
brought to you by Quizilla
Ég er Snillingur og ekkert annað

þriðjudagur, mars 02, 2004

Ég er greinilega góð kona..



What Famous Leader Are You?


What Classic Movie Are You?

Ég er Snillingur og ekkert annað

Afmælisdagur bjórsins

Bjórinn á afmæli í dag!! 15 ár frá afléttingu bjórbannsins... Því miður get ég ekki fagnað þessum degi með afmælisbarninu.. Gestir með afmælisbarn í farteskinu eru mjög velkomnir :)

Ég fékk útborgað í dag.. eða fékk námslánin mín.. og langþráðan pening.. Ég fór í Bónus og verslaði fyrir rúmlega sautjánþúsund krónur... það var ekkert mál.. en það var ansi mikið mál að koma þessu öllu heim.. Ég keypti mér líka skólabækur í dag.. því sumir kennarar eru svo skemmtilegir og ákveða á miðri önn að bæta við námsefnið.. Það er leiðinlegt að búa upp á 3 hæð og þurfa að fara 4 ferðir með innkaupavörurnar, barnið, skólatöskuna osfrv.. Langar að flytja í hús með lyftu... eða bara búa neðar..

Ég kveikti á Popptíví áðan.. og það var einhver íslenskur þáttur.. 100 og einn.... í honum var fylgst með nokkrum stelpum sem hlóu og glenntu á sér brjóstin.. sungu illa í karókí og fóru svo og horfðu á kallafegurðarsamkeppni .. hef aldrei séð verra sjónvarpsefni og hlakka mikið til næsta fimmtudag.. þegar næsti þáttur í seríunni verður sýndur.. Flott framtak hjá okkur Íslendingum í raunveruleikaþáttaflóruna.. Já .. eða ekki

Ættum kannski að senda þeim spóluna af gæsapartýinu hennar Ausu ;)


Ég er Snillingur og ekkert annað

This page is powered by Blogger. Isn't yours?